Bækur og rit

Málarinn og menningarsköpun

  • 2017- Ritstjórar: Karl Aspelund og Terry Gunnell

Siguður Guðmundsson og Kvöldfélagið, 1858-1874

Bókin inniheldur 17 ritrýndar greinar, hluti afrakstrar fimm ára rannsóknarverkefnis þar sem rýnt var í störf og áhrif Sigurðar Guðmundssonar málara og Kvöldfélagsins, leynilegs málfundarfélags í Reykjavík.  Áhrif þessa starfs á leikhús, hönnun, þjóðsagna-og forngripahönnun, þjóðlega búninga og þjóðfræðislega umræðu. Þjóðminjasafn Íslands gefur bókina út í samstarfi við bókaútgáfuna Opnu.

Til Sigurðar má rekja upphaf Þjóðminjasafnsins og Þjóðleikhússins. Bókin er rétt um 600 blaðsíður að lengd, í henni eru u.þ.b. 140 myndir, en auk þess geymir hún ítarlega heimildaskrá, sem spannar rúmlega 30 blaðsíður

Ritstjórar: Karl Aspelund og Terry Gunnell 

Bókin er til sölu í safnbúðum Þjóðminjasafnsins og í vefverslun: http://netverslun.thjodminjasafn.is/is/product/malarinn-og-menningarskopun-sigudur-gudmundsson-og-kvoldfelagid-1858-1874