Fréttir
Fötlun fyrir tíma fötlunar
Rannsóknasetur í fötlunarfræðum býður til opnunar öndvegisverkefnisins Fötlun fyrir tíma fötlunar
Rannsóknarverkefnið, sem hlaut öndvegisstyrk Rannís fyrr á þessu ári, byggist á einstöku þverfræðilegu samstarfi margra fræðigreina og fræðimanna sem beina sjónum að sögu fatlaðs fólks í íslenskri fortíð, en þetta er svið sem hefur lítið sem ekkert verið rannsakað fram til þessa.
Fundarstjóri: Ármann Jakobsson
Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður setur málþingið
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir aðstoðarrektor vísinda við HÍ: „Þverfræðilegt samstarf - lífæð framsækinnar þekkingarsköpunar"
Anna Lísa Rúnarsdóttir, sviðsstjóri rannsókna og þróunar á Þjóðminjasafni Íslands „Í leit að þekkingu“
Rannveig Traustadóttir forstöðumaður Rannsóknaseturs í fötlunarfræðum: „Framtíðin er núna“
Hanna Björg Sigurjónsdóttir prófessor í fötlunarfræði og verkefnastjóri öndvegisverkefnisins Fötlun fyrir tíma fötlunar
Berth Danermark, prófessor Þverfræðilegar rannsóknir: kenning og reynsla
Fyrri hluti málþingsins verður á íslensku en fyrirlestur Berths Danemark á ensku
Berth Danermark
Í erindinu mun Berth Danermark setja fram kenningu um þverfræðileika ásamt dæmum og góðum ráðum til að takast á við þær áskoranir sem tengjast þverfræðilegri vinnu. Fyrirlesturinn er ætlaður rannsakendum, stefnumótendum, kennurum og fagfólki.
Rittúlkun í boði: 15-17
Táknmálstúlkun í boði: 15-16
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir
Léttar veitingar