Fréttir

Opnun ljósmyndasýninga

16.1.2018

Þjóðminjasafn Íslands býður til opnunar ljósmyndasýninga laugardaginn 20. janúar kl. 14.  Sýningarnar eru á dagskrá Ljósmyndahátíðar Íslands 2018.

Langa blokkin í Efra Breiðholti

Lengd blokkarinnar er um 320 metrar og í fljótu bragði líkist hún helst virkisvegg.

Innan hennar eru tuttugu stigagangar og 200 íbúðir þar sem búa nokkur hundruð manns. David Barreiro ljósmyndaði bygginguna, íbúana og umhverfið heima hjá þeim. Íbúarnir eiga það sameiginlegt að hafa reynslu af því að flytjast til Íslands víða að úr heiminum. 

David Barreiro er fæddur árið 1982 í Galisíu á Spáni. Hann hlaut árið 2016 styrk úr sjóði Hjálmars R. Bárðarsonar í Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminjasafni og er sýningin árangur styrksins. Í tilefni sýningarinnar gefur Þjóðminjasafn Íslands út samnefnt rit með myndum Barreiro. Myndir Barreiro eru sýndar í Myndasal Þjóðminjasafnsins. 

Fornar verstöðvar

Karl Jeppesen hefur ljósmyndað fornar verstöðvar um allt land. Á Veggnum er sýnt úrval þessara mynda. Ástand verstöðvanna er misjafnt. Víða sjást minjarnar glögglega en á öðrum stöðum eru þær horfnar af yfirborði jarðar.

http://www.thjodminjasafn.is/syningar-vidburdir/sersyningar/syningar-framundan/

Sýningarnar standa yfir frá 20. janúar – 27. maí 2018.