Fréttir

Þjóðminjasafn Íslands og bókaútgáfan Crymogea gefa út Þjóðminjar eftir Margréti Hallgrímsdóttur þjóðminjavörð

28.11.2016

Í þessari ríkulega myndskreyttu bók greinir þjóðminjavörður frá sögu Þjóðminjasafns Íslands og fjallar um hinn fjölbreytta menningararf sem safnið geymir. 

Hlutverk Þjóðminjasafns er að miðla þekkingu um sögu og aðstæður fólks, vekja til umhugsunar og auðga samfélagið. Það er höfuðsafn á sviði þjóðminjavörslu og leiðandi í safnastarfi á Íslandi. Menningarminjar í vörslu Þjóðminjasafns segja sögu þjóðarinnar frá landnámi til nútíma og varða veginn til framtíðar.

Bókin er 352 blaðsíður að stærð og hönnuð af Ámunda Sigurðssyni. Ritstjóri er dr. Anna Lísa Rúnarsdóttir og myndaritstjóri Inga Lára Baldvinsdóttir. Ljósmyndir tók Ívar Brynjólfsson, auk þess sem töluvert af myndefni bókarinnar er úr Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminjasafni. 
Í tilefni útgáfu Þjóðminja er boðið til útgáfuhófs í Þjóðminjasafni Íslands fimmtudaginn 1. desember kl. 15. Höfundur verður á staðnum og kynnir bókina. Fram að 1. desember býðst bókin í forsölu á sérstöku tilboðsverði, eða kr. 9.900.- Bókin er til sölu í Safnbúð Þjóðminjasafns Íslands, hægt er að panta hana í síma 530 2203 eða senda tölvupóst til: vala.olafsdottir@thjodminjasafn.is eða groa.finnsdottir@thjodminjasafn.is Bókin Þjóðminjar er einnig fáanleg í öllum helstu bókaverslunum landsins frá og með 1. desember.