Málaður kistill eftir Jón Hallgrímsson í Kasthvammi
FEBRÚAR 2018
Þjms. 1973-106
Marga merkilega gripi er að finna í munasafni Þjóðminjasafnsins, þar á meðal þennan kistil sem gerður er af Jóni Hallgrímssyni í Kasthvammi. Á kistlinum sem er gerður árið 1796 er máluð mynd af konu og karli sem kyssast og er allóvanalegt að sjá slíka ástarjátningu frá þessum tíma. Það er því vel við hæfi að þessi kistill sé gripur febrúarmánaðar þar sem konudagur og hinn nýtilkomni erlendi siður, Valentínusardagurinn, eru á næsta leiti og nóg tilefni til ástarjátninga og gjafa.
Kistillinn er málaður á loki og öllum hliðum og er grunnur hans svartur en myndirnar eru litríkar, mest er þó af rauðum og ljósum litum sem rímar ágætlega við ástarþemað. Á framhliðinni er máluð mynd af höfði konu og karls sem kyssast og er konan búin krókfaldi en karlinn berhöfðaður. Á framhliðina eru auk þess málaðir stafirnir I I D, sem eru upphafsstafi konunnar sem fyrst hefur átt kistilinn (I... J....dóttir) en óþekkt er hver hún var, líklega hefur hún þó verið Jónsdóttir. Á framhliðina er einnig málað ártalið Ao 1796. Á hliðum kistilsins eru myndir af fuglum og trjám og á lokinu eru myndir af blómum (úr Aðfangabók). Kistillinn er fallega málaður og í skrautinu í kring um myndirnar eru málaðar ljósar línur sem nær fram skemmtilegum þrívíddaráhrifum.
Safnið keypti kistilinn af Sigríði Björnsdóttur frá Miklabæ árið 1973 en móðir Sigríðar hafði keypt hann á uppboði eftir gamla konu á Víðivöllum.
Jón fæddist að Naustum í Eyjafirði 1741 og var hann sonur Hallgríms Jónssonar bónda og smiðs sem þekktur var fyrir útskurð og málverk (Þóra Kristjánsdóttir 2005). Hann var þá einnig bróðir Guðmundar föður Guðrúnar móður Arngríms málara Gíslasonar. Jón lærði tréskurð og málaralist í Kaupmannahöfn og fluttist aftur heim árið 1760 og lifði til 1808. Annar kistill sem hann málaði er í eigu safnsins (1935-32) en sá er með einfaldari skreytingu og engum áberandi ástarjátningum. Jón málaði einnig fjölmargar altaristöflur og hafa tíu slíkar varðveist. Þær voru málaðar á árunum 1765-1806, en það elsta sem varðveist hefur eftir hann eru myndir sem hann málaði í Hóladómkirkju, en hún var reist um 1760 og vígð 1763 (Þóra Kristjánsdóttir 2005).
Hrönn Konráðsdóttir
Heimildir:
Þóra Kristjánsdóttir. Mynd á þili. Reykjavík, 2005: bls. 126-133.
Aðfangabók Þjóðminjasafnsins
Sarpur.is