Ljúfar veitingar á kaffihúsinu
Notalegt kaffihús í fallegu umhverfi. Léttar veitingar, kaffi, te, gos ásamt bjór og léttvíni.
Kaffihúsið er opið til klukkan 22:00 á Safnanótt.
Sérhannaðar vörur með sögu Safnbúð opin á Safnanótt
Safnbúðin er opin á Safnanótt frá kl. 18 til 23.
Lesa meiraKvöldvaka við baðstofuna með kvæðamannafélaginu Iðunni
Öldum saman styttu Íslendingar sér stundir við vinnu sína á kvöldin í baðstofunni með ýmis konar skemmtun, afþreyingu og fræðslu. Á meðan heimilisfólk sat á rúmstokknum með verk í hönd tók eitthvert þeirra að sér að kveða, segja sögu eða lesa upp úr gömlum eða nýjum ritum hinum til skemmtunar.
Lesa meiraSérfræðileiðsögn með Lilju Árnadóttur um sýninguna Með verkum handanna
Lilja hefur fágæta þekkingu á refilsaumsklæðunum og fullt hefur verið út úr dyrum á leiðsagnir hennar. Við hvetjum fólk til að láta þennan viðburð ekki fram hjá sér fara.
Lesa meiraBjössi trúbador spilar og listakonurnar, Guðrún Eva Mínervudóttir textahöfundur og íbúi hjólhýsabyggðarinnar taka á móti gestum.
Ljósmyndasýningin Ef garðálfar gætu talað er einstök heimild um hjólhýsabyggðina á Laugarvatni sem nú er liðin undir lok. Sem búsetuform var hjólhýsabyggðin visst millistig. Þorp en samt ekki. Sveit en samt ekki. Nema hvort tveggja væri.
Lesa meiraÞjóð verður til - Menning og samfélag í 1200 ár. Velkomin á Safnanótt!
Á Safnanótt er upplagt að skoða grunnsýningu safnsins Þjóð verður til - menning og samfélag í 1200 ár.
Lesa meira