Farandsýningar

Farandsýningar

Þjóðminjasafn Íslands býður til útláns fjölmargar sýningar sem áður hafa verið settar upp í sölum safnsins. Flestar sýninganna eru ljósmyndasýningar með myndum sem varðveittar eru í Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminjasafni en einnig er um gripasýningar að ræða.

Þeir sem hafa áhuga á að fá sýningarnar geta einnig fengið senda sýningatexta, mynda- eða gripamerkingar og kynningarefni. Eintök af bókum eða ritum sem safnið hefur gefið út í tengslum við viðkomandi sýningar, má fá í umboðssölu í safnverslun Þjóðminjasafns Íslands. 

Kostnaður við sýningarnar er kr. 30.000.- auk flutningskostnaðar.

Nánari uppl.: Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir s: 5302257

Netfang:  thorbjorg.gunnarsdottir@thjodminjasafn.is

 
ThThTh_1

Þrælkun, þroski, þrá?

Ljósmyndir eftir íslenska ljósmyndara sem vekja spurningar um vinnumenningu og barnauppeldi á Íslandi á fyrri hluta 20. aldar.

Lesa meira
 
Til_gagns_og_1

Til gagns og til fegurðar

Með sýningunni og í samnefndri bók, kynnir Æsa Sigurjónsdóttir listfræðingur og sýningarhöfundur, rannsóknir sínar á útliti og klæðaburði Íslendinga í ljósmyndum frá 1860 til 1960.

Lesa meira
 
Friise_1

Með augum gestsins

Ljósmyndir norska útgerðarmannsins og áhugaljósmyndarans Hans Wiingaard Friis frá árum hans á Íslandi í byrjun 20. aldar.

Lesa meira
 
gudni-a-motum-tveggja-tima

Á mótum tveggja tíma

Ljósmyndirnar úr safni hins þjóðþekkta Guðna í Sunnu, blaðamanns, ljósmyndara og ferðamálafrömuðar eru eins og tímasneið frá árunum 1946 til 1960. Þetta eru þjóðlífsmyndir víða að af landinu frá miklu umbrotaskeiði í sögu þjóðarinnar. Þar má sjá fólk við hversdagslega iðju og alls konar störf úti og inni.

Lesa meira
 
I_Vesturheimi_GTh

Í Vesturheimi 1955

Úrval ljósmynda Guðna Þórðarsonar blaðamanns og ljósmyndara frá ferðum um byggðir Vestur-Íslendinga í Kanada og Bandaríkjunum sumarið 1955.

Lesa meira
 
Sögustaðir

Sögustaðir – í fótspor W.G. Collingwoods

Sýningin samanstendur af úrvali ljósmynda Einars Fals Ingólfssonar og endurgerðum af hluta þeirra verka sem W.G. Collingwood vann hér á landi sumarið 1897, en Einar Falur ferðaðist í fótspor Collingwoods rúmum 110 árum seinna og myndaði sömu staði.

Lesa meira
 
Undraborn_A

Undrabörn

Ljósmyndir eftir hinn heimsfræga bandaríska ljósmyndara Mary Ellen Mark af íslenskum börnum sem eiga við margskonar fötlun að stríða. Myndirnar voru teknar í Öskjuhlíðarskóla, Safamýrarskóla og í Lyngási haustið og veturinn 2006-2007. Á sýningunni eru einnig ljósmyndir Ívars Brynjólfssonar af skólaumhverfi barnanna.

Lesa meira
 
Snertid_Ekki_C

Ekki snerta jörðina! Leikir 10 ára barna

Haustið 2009 heimsótti Samstarfshópur safna um leiki barna tíu ára börn í níu grunnskólum víðsvegar um landið. Rætt var við hátt í 200 börn um leiki og áhugamál þeirra, en þetta var liður í rannsókn átta safna á leikjum tíu ára barna á Íslandi árið 2009. Niðurstöður verkefnisins má sjá á farandsýningunni Ekki snerta jörðina! 

Lesa meira
 

Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica