Sögustaðir – í fótspor W.G. Collingwoods
Sýningin samanstendur af úrvali ljósmynda Einars Fals Ingólfssonar og endurgerðum af hluta þeirra verka sem W.G. Collingwood vann hér á landi sumarið 1897, en Einar Falur ferðaðist í fótspor Collingwoods rúmum 110 árum seinna og myndaði sömu staði.
Á sýningunni má sjá úrval ljósmyndaverka eftir Einar Fal Ingólfsson (1966) sem unnin eru með hliðsjón af vatnslitamyndum, teikningum og ljósmyndum sem breski myndlistarmaðurinn og fornfræðingurinn William Gershom Collingwood (1854-1932) málaði og tók af stöðum sem koma fyrir í Íslendingasögunum á tíu vikna ferðalagi um Ísland sumarið 1897. Margar þessara mynda eru varðveittar í Þjóðminjasafni Íslands og er hluti þeirra á sýningunni.
Á árunum 2008-2010 naut Einar Falur leiðsagnar Collingwoods á ferð sinni milli íslenskra sögustaða og studdist við myndverk hans og skrif. Einar Falur vann með þau sjónarhorn sem Collingwood valdi sér en einnig, og frekar, fann sér sína eigin nálgun við þá staði sem Bretinn vísaði honum á.
Sýningarhöfundur: Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari.



Fjöldi mynda:Mest 48 myndir (21 myndir EFI, 27 myndir W.G.C.)
Stærðir:
Myndir EFI mismunandi stærðir, myndir W.G.C. ca. 34 x 39 cm
Frágangur:
Allar myndir innrammaðar
Áætlað sýningarrými:
Fer eftir fjölda mynda
Meðfylgjandi sýningargögn:
Myndatextar, inngangstexti á rafrænu formi ásamt kynningartexta.
Bók/Rit:
Bókin Sögustaðir – Í fótspor W.G. Collingwood gefin út í samstarfi Þjóðminjasafnsins og Crymogeu. (145 bls)
Áfangastaðir sýningarinnar:
Byggðasafn Vestfjarða mars – maí 2011
Menningarhúsið Hof, Akureyri maí - júlí 2011
Héraðsskjala- og ljósmyndasafn Akraness, Kirkjuhvoli janúar - febrúar 2012
Kostnaður við sýninguna er kr. 30.000.- auk flutningskostnaðar.
Nánari uppl.: Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir s: 5302255

