Ljósmyndir

Aldarspegill 20. Aldar

Sýnishorn úr AldarspegliTuttugasta öldin er öld ljósmyndarinnar. Enginn annar miðill nær að fanga hugblæ tímans og samfélags­breytingarnar með sama hætti og ljósmyndin og sambærilegt myndamagn er ekki til frá neinni annarri öld. Því var frá upphafi ákveðið að sýna 20. öldina ekki aðeins með munum frá öldinni heldur einnig með ljós­myndum í nokkrum afmörkuðum myndasýningum sem brugðið er upp á veggfleti og skjái á endavegg sýningarinnar á efri hæð.

Lesa meira

 

Skjámyndasýningar

Mannamyndir - 1932Þrjár skjámyndasýningar má finna á þriðju hæð grunnsýningarinnar við hliðina á aldarspeglinum. Þar er hægt að gera mörgum efnisflokkum ítarlegri skil en kostur er í aldarspeglinum þar sem brugðið er upp myndum af mörgum og ólíkum hlutum og gæta þarf jafnvægis og huga að sögulegri framvindu. Fyrst í stað var ákveðið að gera þrjár myndasýningar fyrir skjái um afmörkuð efni, mannamyndir, fólk og ferðalög og bernskuna. Valið á þessum þáttum helgaðist af ólíkum forsendum. Lesa meira
 

Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica