Ljósmyndir

Aldarspegill 20. Aldar

Sýnishorn úr AldarspegliTuttugasta öldin er öld ljósmyndarinnar. Enginn annar miðill nær að fanga hugblæ tímans og samfélags­breytingarnar með sama hætti og ljósmyndin og sambærilegt myndamagn er ekki til frá neinni annarri öld. Því var frá upphafi ákveðið að sýna 20. öldina ekki aðeins með munum frá öldinni heldur einnig með ljós­myndum í nokkrum afmörkuðum myndasýningum sem brugðið er upp á veggfleti og skjái á endavegg sýningarinnar á efri hæð.

Sýnishorn úr Aldarspegli - 1901Aðalmyndasýningin er svonefndur Aldarspegill. Rakin er saga lands og þjóðar ár frá ári í heila öld með um sex ljósmyndum frá hverju ári. Yfirleitt eru tvö til þrjú meginefni tekin fyrir, tengd hverju ári og fleiri en ein mynd helguð hverju efni til að gefa fjölþættari og fyllri mynd af því.

Sýnishorn úr Aldarspegli -1940Á árinu 1901 er til dæmis tekin fyrir sjósókn og fiskverkun í sex myndum frá fimm stöðum á landinu sem varpa ljósi á þennan efnisflokk með ólíkum hætti. Þar eru sýnd skinnklæði sjómanna, áraskipið, helsti farkostur sjómanna, og aðstæður til sjósetningar og lendingar á þeim áður en bryggjur fóru að tíðkast. Fiskþvottur kemur við sögu, bæði á heimilisgrunni þar sem ein kona vaskar fisk í flæðarmálinu og hjá stærri útgerð í þéttbýli þar sem hópur kvenna vinnur saman undir stjórn verkstjóra með þilskip, tákn stórtækari veiðiskipa, í baksýn. Loks eru konur að störfum við fiskbreiðslu á stakkstæði í þorpi.

Sýnishorn úr Aldarspegli - 1962Brugðið er upp myndum af nokkrum völdum efnisþáttum á öllum áratugum 20. aldarinnar. Andblær mismunandi tíma, aðbúnaður og umhverfi fólksins í landinu er leiðarljós sýningarinnar. Hér er varpað fram svipmyndum og samhengi úr lífi fólks í leik og starfi, sem og þróun í híbýlum og á opinberum stöðum eins og verslunum. Hvert tímabil kallast á við annað. Daglegt líf, umhverfi og aðstæður fólks birtast í þverskurði tímans með margvíslegum hætti.

Sýnishorn úr Aldarspegli - 1980Í aldarspeglinum eru um 650 myndir eftir fjölmarga ljósmyndara, bæði áhugamenn og atvinnumenn víða af landinu og er meginhluti þeirra úr myndasafni Þjóðminjasafnsins. Ekki er unnt að tímasetja hverja mynd með vissu en leitast er við að hafa þær sem næst árinu og skekkjumörk innan fimm ára.




Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica