Skjámyndasýningar
Þrjár skjámyndasýningar má finna á þriðju hæð grunnsýningarinnar við hliðina á aldarspeglinum. Þar er hægt að gera mörgum efnisflokkum ítarlegri skil en kostur er í aldarspeglinum þar sem brugðið er upp myndum af mörgum og ólíkum hlutum og gæta þarf jafnvægis og huga að sögulegri framvindu. Fyrst í stað var ákveðið að gera þrjár myndasýningar fyrir skjái um afmörkuð efni, mannamyndir, fólk og ferðalög og bernskuna. Valið á þessum þáttum helgaðist af ólíkum forsendum.
Mannamyndir 1928 - 1932
Varðveitt er gríðarlegt safn portrettmynda í myndasafninu, sem verðugt þótti að gera góð skil. Þar birtist þjóðin okkur spariklædd í umgjörð ljósmyndastofunnar og greina má breytingar í tækni og nálgun ljósmyndarans í framsetningu myndanna.
![]() |
|
![]() |
![]() |
Samgöngur
Ekkert tók jafn miklum breytingum á Íslandi á 20. öldinni og samgöngur og því rík ástæða til að taka þær sérstaklega fyrir. Þar er rakin þróun frá áraskipum, hestum, tveimur jafnfljótum og vegleysum til hljóðfrárra flugvéla og hraðbrauta og einkabílaeignar á hverju heimili.
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Bernskan
Börn og bernskan hafa jafnan sterka skírskotun og fólk á mjög auðvelt með að samsama sig henni og því er fjallað sérstaklega um hana. Líkt og í aldarspeglinum er öldin rakin ár frá ári og eru um 100 ljósmyndir í hverri myndasyrpu.
![]() |
![]() |
|
![]() |
![]() |













