Lykilgripir
Þórslíkneskið, mannslíkan úr bronsi frá því um 1000

Þór eða Kristur?

Lykilgripur tímabilsins 800-1200

Þórslíkneskið svokallaða er lítið mannslíkan úr bronsi. Ákveðin stíleinkenni benda til þess að líkneskið hafi verið gert nálægt aldamótunum 1000. Það hefur verið talið sýna Þór sem var einn fremsti guð norrænna manna í heiðnum sið en hugsanlegt er að myndin sé af Kristi konungi á veldisstóli. Bronskarlinn heldur báðum höndum um hlut sem talinn hefur verið Þórshamar, en líkist mjög kristnum krossi.

Líkneskið fannst árið 1815 eða 1816 hjá öðru hvoru Eyrarlandi við Eyjafjörð. Það var sent til Kaupmannahafnar árið 1817 en kom aftur til Íslands 1930 ásamt ýmsum öðrum forngripum úr Þjóðminjasafni Dana. Á tímabilinu 800-1000 var heiðin trú ríkjandi á Íslandi en allt frá landnámi bjuggu hér kristnir menn að því er virðist í friðsamlegri sambúð við þá heiðnu.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica