Ufsakristur
Lykilgripur tímabilsins 1000-1200
Kristur er sýndur alskeggjaður og sítt hárið fellur niður um herðarnar. Hann hefur um sig lendaklæði eins og venja er á slíkum myndum og stendur teinréttur á fótstalli með upprétt höfuð, opin augu og arma teygða beint út frá öxlum, allt einkenni rómanska stílsins.
Rómanskir krossar tíðkuðust fram um 1200. Á þeim er Kristur valdsmannslegur og oft krýndur kórónu konungs. Á gotnesku krossunum sem komu á eftir ber hann þyrnikórónu píslarvottsins, höfuðið hneigist niður og líkaminn hangir í dauðastellingum.
Krossar með Kristslíkneskjum, róðukrossar, voru í flestum kaþólskum kirkjum. Við siðbreytinguna voru margar dýrlingamyndir eyðilagðar en krossar í kirkjum fengu fremur að vera í friði.

