Vegna legu sinnar var Ísland óbyggt lengur en flest lönd heimsins. Fyrir rúmum 1100 árum byggðist landið fólki sem kom einkum frá Noregi. Hér var konungslaust samfélag þar sem goðar réðu mestu.
Um aldamótin 1000 tóku Íslendingar kristni. Brátt var stofnuð kirkja með biskupum, prestum, skólum og klaustrum. Landsmenn bjuggu í sveitum og lifðu aðallega á kvikfjárrækt.
Lesa meira
Á 13. öld var mikill ófriður á Íslandi. Honum lauk um 1262-1264 er landsmenn urðu þegnar Noregskonungs. Á næstu öld jukust fiskveiðar og sjávarafurðir urðu helsta útflutningsvaran.Lesa meira