Gripir 9. og 10. aldar
Varðveittir safngripir frá fyrstu öldum Íslandsbyggðar hafa fundist í jörðu á síðustu 200 árum, ýmist við skipulegar fornleifarannsóknir eða sem lausafundir. Það þýðir að þeir hafa fundist á yfirborði jarðar, en aðstæður hafa ekki leyft frekari rannsóknir. Þessir gripir eru tímasettir út frá því við hvers konar aðstæður þeir fundust. Einnig má nýta gerðþróunarfræði, þar sem gerð þeirra og e.t.v. mynstur eru notuð til aldursgreiningar.
Flestir þessara gripa eru úr ólífrænu efni eins og málmi, en hér á landi er mun fátíðara að gripir úr lífrænu efni, svo sem viði og beini, hafi varðveist. Algengast er skart og vopn auk ýmiss konar járngripa. Sáralítið er um að fatnaður hafi varðveist frá þessum tíma. Hið eina sem vitnar um klæðaburð fólks eru skartgripir eins og nælur og hringprjónar.
Frekari vitneskja um líf og störf fólks á fyrstu öldum hefur fengist síðari ár eftir því sem fornleifarannsóknum fleygir fram. Þeirrar vitneskju sér ekki alltaf stað í varðveittum gripum. Hún birtist í niðurstöðum rannsókna á gróðurfari, beinaleifum, jarðlögum og fleiri þáttum sem skráðir eru og rannsakaðir við fornleifagröft.


