Gripir 13. og 14. aldar
Gripir 13. og 14. aldar
Ennþá einkennist tímabilið af því að varðveittir gripir hafa í mörgum tilfellum verið í jörðinni öldum saman. Annars hefðu þeir glatast. Vopnaskaki Sturlungaaldar sér stað í sverðum og spjótum sem fundist hafa hér og þar um landið.
Minjar um atvinnuhætti eru fátíðar í söfnum þótt einstaka steðji til járnsmíða og önglar til fiskveiða beri fyrir augu. Elstu klæðisplögg og vaðmálspjötlur hafa komið upp við fornleifarannsóknir. Nú fjölgar þeim gripum sem varðveist hafa ofan jarðar.
Kirkjan leggur okkur mest til af gripum inni á söfnunum. Veldi hennar birtist í helgigripum sem ýmist voru keyptir frá útlöndum eða skapaðir hér á landi. Húsaviðir voru skornir út hér, kaleikar drifnir úr silfri og klæði og reflar saumuð út.

