Gripir 11. og 12. aldar
Fjalir úr Flatatungu, fornir viðir úr kirkju frá 12. öld.

Gripir 11. og 12. aldar

Varðveittir safngripir frá fyrstu öldum kristni á Íslandi eru í eðli sínu ekki ólíkir því sem þekkist frá öldunum þar á undan. Jarðfundnir gripir úr ólífrænum efnum finnast við fornleifarannsóknir en nú tekur að örla á því að gripir hafi varðveist án þess að felast í jörðu.

Það merkilegasta verður að telja útskorna húsaviði sem flestir fundust í árefti torf­húsa á 20. öld, t.d. norðlenskar viðar­þiljur. Þannig varð fastheldni í íslenskri húsagerð og timburskortur þess valdandi að við eigum dýrlegan útskurð úr íslenskri kirkju á 12. öld sem ekki á sér annan líka í heiminum.

Elstu kirkjugripir á landinu eru tíma­settir til 12. aldar og varðveittust innan vé­banda kirkjunnar allt þar til þeir komu til safnsins fyrir atbeina frum­kvöðlanna í söfnun gripa. Hið sama á við og á fyrri öldum að gripir sem vitna um daglegt líf skortir en það sem varðveist hefur manna á meðal vitnar um glæsileik og listfengi forfeðra okkar. Hitt sem hvers­dagslegt getur talist átti ekki sömu löngu lífdagana.




Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica