Gripir 17. og 18. aldar
Húsmunir og ábreiður frá 18. öld

Gripir 17. og 18.aldar

Þegar kemur fram yfir siðaskipti kveður við nýjan tón hvað varðveislu gripa varðar og fjölgar þeim til muna. Útskornir gripir og textílar setja mjög svip sinn á safn­kostinn. Það eru kistlar, skápar, trafakefli, lárar og rúmfjalir, svo dæmi séu nefnd. Kvenskart og silfurgripir heldra fólks eru þar á meðal. Sammerkt er þessum gripum að þeir hafa varðveist manna á meðal þar til safnmenn hafa sóst eftir þeim eða eigendum þótt svo mikið til þeirra koma að þeir ættu heima á safni.

Alþýðumenning og listsköpun meðal þjóðar­innar verður sýnilegri og eru ástæður vafalaust nokkrar. Nálægð í tíma skýrir vitaskuld þá mynd sem nauðsynleg er til þess að takast megi að endurskapa aðbúnað fólks, líf og starf hins almenna Íslendings, þótt vitaskuld séu varðveittir gripir fremur úr fórum þeirra sem meira máttu sín. Varðveisla fatnaðar er glöggt dæmi þar um, þar sem við eigum aðeins dæmi um klæðnað heldri kvenna. Hvers­dags­fatnað vantar með öllu og karl­manna­föt eru varla til.




Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica