800-1000 Upphaf Íslandsbyggðar
Maðurinn hafði byggt jörðina í milljónir ára þegar leið hans lá til Íslands. Á víkingaöld smíðuðu Norðurlandabúar loks svo fullkomin skip að menn gátu siglt hingað frá Noregi og norrænum víkingabyggðum á Bretlandseyjum. Búseta hófst í landinu um 870.
Margt hlýtur að hafa verið framandi. Skógar voru aðallega lágvaxið birki og graslendi var ríkulegt. Landnemar hafa ekki kynnst eldgosum eða gjósandi hverum fyrr en á Íslandi.
Enginn konungur réð yfir Íslandi en goðar, heiðnir höfðingjar landsmanna, stofnuðu eitt þing fyrir allt landið. Um aldamótin 1000 tóku Íslendingar kristni.
Lykilgripur tímabilsins: Þór eða Kristur?
Stiklur úr sýningunni
- Landið við landnám
- Uppruni landnámsmanna − Hvaðan komu þeir?
- Landið numið −Fyrsti veturinn
- Lifað af landinu −Byggð og bú
- List víkingaaldar −Stílgerðir
- Víkingar á Íslandi −Viðskipti og vopnaskak
- Heiðni og kristni −Annað líf
- Á mörkum heiðni og kristni −Kristnitaka

Gripir 9. og 10. aldar