Tímabil
Ýmsir munir frá 15. og 16. öld

1400-1600 Í Danaveldi

Konungur Dana tók við ríki Noregskonungs og varð þannig konungur Íslands. Hann réð því að Íslendingar tóku upp lútherstrú.

Á 14. öld blönduðust norska og danska konungsættin og norska krúnan hvarf undir Danakonung. Englendingar og Þjóðverjar sóttu mjög til Íslands til fiskveiða næstu aldirnar og höfðu stundum meiri völd þar en konungur.

Miklar farsóttir gengu hér tvisvar á 15. öld og fækkaði landsmönnum hugsanlega um helming í hvort skipti.

Borðdúkur frá Staðarhóli. Hefur ef til vill prýtt háborð í stofu á Staðarhóli í lok 16. aldar.Á fyrri hluta 16. aldar fyrirskipaði Danakonungur lútherstrú um allt ríki sitt. Á Íslandi urðu langvinn átök um siðaskiptin. Þeim lauk árið 1550 þegar síðasti kaþólski biskupinn, Jón Arason, var tekinn af lífi. Eftir siðaskiptin jukust völd konungs í landinu.

Lykilgripur tímabilsins: Guðbrandsbiblía

Gripir 15. og 16. aldar

Stiklur úr sýningunni

  • Samskipti við Evrópu −Enska og þýska öldin
  • Svarti dauði −Pestir og plágur
  • Yfirvald og landeigandi −Auður og vald kirkjunnar
  • Átakamikil siðaskipti −Skálholt og Hólar
  • Lútherskur menningarfrömuður −Guðbrandur biskup



Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica