Tímabil
grunnsyning

1900-2000 Leiðin til samtímans

Á 20. öld breyttist allt. Atvinnulífið varð vélknúið. Þjóðin myndaði sjálfstætt ríki. Konur fengu mannréttindi. Meirihluti íbúa settist að í þéttbýli. Lífshættir gerbreyttust. Í byrjun aldarinnar hófst vélvæðing fiskiskipaflotans. Mótorar voru settir í bátana og keyptir gufuknúnir togarar. Það var upphafið að atvinnubyltingu Íslendinga.

Árið 1904 fengu Íslendingar heimastjórn. Árið 1918 varð Ísland sjálfstætt ríki í konungssambandi við Danmörku og lýðveldi var stofnað 1944. Á næstu áratugum öðluðust Íslendingar vald yfir fiskimiðum sínum.

Skömmu eftir 1920 varð fjöldi þéttbýlisbúa fyrst meiri en sveitafólks. Sú þróun hefur haldið áfram. Í aldarlok voru Íslendingar um 280.000. Af þeim bjuggu rúm 90% í þéttbýli og yfir 60% í Reykjavík og nágrenni.

Lykilgripur tímabilsins: Hvítbláinn

Gripir 20. aldar

Stiklur úr sýningunni

  • Myndun borgarsamfélags − Brunahani
  • Orkutækni − Rafmagnsstaur
  • Atvinnubylting −Steinolíuvél frá 1902
  • Þjóðrækni og umheimur − Togvíraklippur
  • Samfélag velferðar og neyslu − Ljósmyndasjálfsali
  • Listmenning og þjóðarímynd −Plastupphlutur frá 2000



Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica