Fjölbreyttar sérsýningar
Í Þjóðminjasafninu er á hverju ári boðið upp á fjölbreyttar sérsýningar, þær stærstu í Bogasal og Myndasal.
Þeir 2000 munir sem sýnis eru á grunnsýningunni eru einungis lítið brot menningarminja sem safnið hefur í vörslu sinni.
Gripir í eigu safnsins skipta tugum þúsunda og á ný aðföng berast á hverju ári. Þeir tvö þúsund munir sem allajafna eru til sýnis á grunnsýningunni eru einungis lítið brot af því sem varðveitt er í Munasafni Þjóðminjasafnsins.
Ekki er unnt að sýna allan safnkostinn á grunnsýningunni en reynt er að gera honum nánari skil á sérsýningum. Í Bogasalnum á 2. hæð safnsins eru venjulega settar upp tvær sýningar á ári. Þar eru munir í eigu safnsins sýndir og greint frá rannsóknum á þeim. Sýningum í Bogasal er meðal annars ætlað að varpa ljósi á afmarkaða hluta af safnkostinum og gera þeim ýtarlegri skil. Einnig er efnt til sýninga sem tengja samtímalist og þjóðmenningu.
Í Horninu á 2. hæð eru haldnar smásýningar þar sem oftast eru kynntar ákveðnar rannsóknir sem fram hafa farið á vegum safnsins.
Þjóðminjasafn Íslands varðveitir líka annars konar menningarminjar. Í Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminjasafninu eru varðveittar um tvær milljónir ljósmynda og er það stærsta ljósmyndasafn á landinu. Á grunnsýningunni má horfa á ljósmyndir á skjámyndasýningum en meira svigrúm er til að kynna Ljósmyndasafnið í hinum fallegu sérsýningarýmum á 1. hæð safnsins. Tvær til þrjár ljósmyndasýningar eru settar upp í Myndasal Þjóðminjasafnsins á hverju ári. Auk þess sem settar eru upp sögulegar sýningar með myndum úr eigu safnsins er efnt til sýninga á verkum íslenskra samtímaljósmyndara. Í Myndasalnum eru einnig stundum haldnar erlendar ljósmyndasýningar.
Sýningum í Myndasal fylgja ávallt litlar ljósmyndasýningar á Veggnum og eru þær opnaðar og teknar niður á sama tíma.
Í Setbergi, húsi Þjóðminjasafnsins að Suðurgötu 43, eru til sýnis sérvaldar ljósmyndir frá sýningum safnsins á síðustu árum.
Á Torginu svokallaða milli veitingastofunnar og Safnbúðarinnar er svigrúm fyrir smásýningar af ýmsu tagi. Oft eru þar sýnd sköpunarverk listamanna sem sækja innblástur sinn í menningararfinn og sýningar Þjóðminjasafnsins.
Stundum er brugðið út af venjunni og sérsýningar settar upp á óvenjulegum stöðum í safninu, til dæmis í Anddyrinu eða Forsalnum á 3. hæð.
Boðið er upp á sérfræðileiðsögn um sýningar í Bogasal og Myndasal og um sumar smásýningar. Í tengslum við sérsýningar er einnig efnt til fyrirlestra, málþinga og annarra viðburða.
Sýningarstarf Þjóðminjasafnsins er ekki eingöngu bundið við safnhúsið sjálft. Menningarsögulegum byggingum í eigu Þjóðminjasafnsins er haldið við í upprunalegu umhverfi sínu víðs vegar um landið og eru sumar til sýnis á sumrin. Ljósmyndasýningar safnsins eiga sér einnig margar framhaldslíf sem farandsýningar og eru settar upp í söfnum víðs vegar um land.
Þjóðminjasafn Íslands kemur einnig að ýmsum öðrum sýningum eftir því sem við á.

