Nemendur Öskjuhlíðaskóla

Landnám Íslands

Torgið 30. apríl - 25. maí 2009

Landnám Íslands séð með augum nemenda 8. bekkjar í Öskjuhlíðarskóla.

Það er hefð í 8.bekk Öskjuhlíðarskóla að læra um landnám Íslands. Nemendur fræðast um fyrstu landnámsmennina og líf í nýju landi. Unnin eru margvísleg verkefni og vinnubækur.

Liður í náminu er að fara í vettvangsferðir. Nemendur heimsækja Sögusafnið í Perlunni, Landnámssýninguna í Aðalstræti og síðast en ekki síst er farið í Þjóðminjasafnið. Á þessum stöðum fá nemendur leiðsögn og skemmtilega fræðslu um landnámið og víkingana.

Að þessum ferðum loknum er tekið til við að vinna á myndrænan hátt úr þeim fróðleik sem safnast hefur í sarpinn á þessu tímabili. Verkin eru að mestu unnin í samvinnu og undir verkstjórn myndmenntakennara skólans.

Á þessari sýningu getur að líta nokkur myndverk nemenda 8. bekkja tveggja síðastliðinna vetra og eiga allir nemendurnir þar einhvern hlut að máli.




Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica