Nú er nýtt ár upprunnið og menn vonandi að jafna sig eftir jólastússið. Í Þjóðminjasafni Íslands er verið að undirbúar nýjar sýningar sem settar verða upp á árinu. Sú fyrsta, sýningin TÍZKA - kjólar og korselett verður opnuð 28. janúar, en þar verða sýndir valdir módelkjólar eftir íslenska kjólameistara og saumakonur frá miðbiki síðustu aldar. Gripur mánaðarins er í anda sýningarinnar, en hann er forláta greiðsluslá.
Sumarið 1930 unnu nokkrir menn við að færa út kirkjugarðinn við Gaulverjabæ á Suðurlandi. Í því skini náðu þeir í mold úr ávalri bungu sunnan við garðinn, en vildi þá ekki betur til en svo að undan skóflu eins mannsins valt hrúga af silfurpeningum. Þeir reyndust vera 360 talsins og frá víkingaöld. Silfursjóðurinn frá Gaulverjabæ er gripur mánaðarins í desember 2011.
Gripur nóvembermánaðar er minningartafla úr eik um Magnús Jónsson prúða, síðari eiginkonu hans Ragnheiði Eggertsdóttur og börn þeirra. Minningartaflan er talin sýna elstu mynd af Íslendingi sem varðveist hefur.
Lesa meira