Heilög Barbara
Gripur mánaðarins - mars 2009
Við fornleifauppgröft í Skriðuklaustri sem stóð frá 2003-2007 fannst líkneski af heilagri Barböru. Á sýningunni Endurfundir sem opnuð var í Þjóðminjasafni Íslands í janúar 2009 má sjá líkneskið, auk annarra gripa sem fundist hafa við fornleifarannsóknir sem fram fóru á mörgum stöðum á landinu á árunum 2001-2005.
Líkneskið af heilagri Barböru var framleitt í Utrecht í Hollandi á 15. öld. Það var brotið þegar það fannst, en sambærileg líkneski, sem aðeins eru til varðveitt erlendis, eru um 35 cm á hæð. Barbara stendur á skreyttum stalli með bók í annarri hendi en turn í hinni. Líkneskið var gert úr leir og greina má fingraför á innanverðum brotunum eftir þann sem mótaði það.

Yfirleitt finnast aðeins smábrot úr leirmunum í fornleifauppgröftum. Ef heillegir gripir finnast eru þeir yfirleitt ekki límdir saman né endurgerðir, þar sem slíkt er mjög tímafrek vinna. Það er einungis gert ef þörf er á því í rannsóknarskyni eða til sýningar eins og fyrir styttuna af heilagri Barböru. Oftast eru brotin einfaldlega hreinsuð og merkt áður en þau eru sett í geymslu.

