Gripur mánaðarins
Batur-i-Bogasal

Léttbátur af togaranum Garðari GK 25

Gripur mánaðarins - maí 2009

Í febrúar 2009 opnaði sýningin Þrælkun, þroski þrá? á Þjóðminjasafni Íslands. Á sýningunni má sjá úrval ljósmynda úr Ljósmyndasafni Íslands af ungum börnum við fiskvinnu úymist á sjó eða á landi á árunum 1930-1950. Auk ljósmyndanna eru gripir á sýningunni sem tengjast sjósókn. Meðal þeirra er léttbátur af togaranum Garðari GK 25 frá Hafnarfirði.

Sennilegt er að léttbáturinn hafi verið smíðaður um 1930 þar sem Garðar kom nýr til Íslands það ár. Báturinn er 5,50 m á lengd og 1,60 á breidd. Hann er málaður hvítur og grænn.

Hluti myndanna á sýningunni eru teknar um borð í Garðari GK 25.




Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica