Gripur mánaðarins
Appelsínugul næla

Appelsínugult barmmerki

Gripur mánaðarins - janúar 2010

Gripur mánaðarins í janúar 2010 er barmmerki, lítill appelsínugulur satínborði sem festur er í kross á öryggisnælu. Borðinn var borinn í „búsáhaldabyltingunni“ snemma árs 2009.

Veturinn 2008-2009 fóru fram mikil mótmæli framan við Alþingishúsið við Austurvöll og Stjórnarráðshúsið. Mótmælin hófust í kjölfar bankahrunsins og áhrifa þess á þróun efnahagsmála á Íslandi. Krafa fólksins var að æðstu stjórnvöld landsins segðu af sér og öxluðu þannig  ábyrgð sína á ástandinu.

Þegar lítill hópur mótmælenda fór yfir strikið og hafði í frammi ofbeldisfulla tilburði gegn lögreglu, ofbauð meginþorra mótmælenda og nokkrir þeirra mynduðu eins konar skjaldborg um lögreglumenn fyrir framan Stjórnarráðshúsið aðfaranótt fimmtudagsins 22. janúar. Í kjölfarið fordæmdu margir mótmælenda ofbeldið sem beindist gegn lögreglumönnum. Til að undirstrika að um friðsæl mótmæli væri að ræða var valinn appelsínuguli liturinn og þeir sem vildu gera þessa afstöðu sína sýnilega klæddust einhverju appelsínugulu við mótmælin eða báru borða sem þennan.




Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica