Gripur mánaðarins
Hökull
Gripur mánaðarins - febrúar 2010
Gripur febrúarmánaðar 2010 er hökull, upphaflega frá Víðivöllum í Fljótsdal. Á honum er krossfestingarmynd og virðist Kristur bera gleraugu. Krossinn er refilsaumaður sem gerir hökulinn einstakan í sinni röð.
Áletrunin INRI er efst og undir Kristsmyndinni eru fangamörkin ITS og SHD, stafir Jóns Þorlákssonar sýslumanns í Múlaþingi og Sesselju Hallgrímsdóttur konu hans. Þar fyrir neðan stendur WIJDIWALLAKIRKIA og ártalið 1677.
Hökullinn er úr hörlérefti með þrykktu blómamunstri. Auk refilsaumsins er krossinn saumaður með flatsaumi, varplegg og steypilykkju. Silkigarn og ullarband er notað í útsauminn.
Hökullinn er nú á sýningu í safninu sem stendur til 25. apríl.

