Gripur mánaðarins
Rakarapóll

Rakarapóll

Gripur mánaðarins - maí 2010

Gripur mánaðarins að þessu sinni er rakarasúla sem var keypt frá Bandaríkjunum uppúr 1930 og hékk utan við rakarastofuna á Hverfisgötu 108 í Reykjavík allt til upphafs níunda áratugar tuttugustu aldar. Alltaf var kveikt á súlunni, hún snerist þegar stofan var opin, en á kvöldin var einungis ljós á henni.

Upphaf rakarasúlna má rekja allt aftur til bartskerastéttarinnar sem varð til á 11. öld. Bartskerar voru einskonar rakaraskurðlæknar, því auk þess að skera hár og skegg manna fólst starf þeirra einkum í að taka mönnum blóð, framkvæma skurðaðgerðir og aflimanir, búa um sár og sjá um tannúrtökur. Bartskerarnir gáfu starfsemi sína til kynna með því að hengja blóði drifna hvíta klúta eða klæði til þerris utan við stofur sínar. Út frá klútunum þróaðist röndótti rakarapóllinn, eins og súlan er gjarnan kölluð.

Árið 1745 var bartskeraiðnin klofin í tvennt og áttu rakarar að nota einungis bláar og hvítar súlur en skurðlæknar einlitar rauðar súlur til að tákna starfsemi sína. Óljóst er hvað þessi aðgreining stóð lengi en í byrjun 19. aldar er rakarasúlum iðulega lýst sem rauðum og hvítum. Þrílitu rakarasúlurnar, bláar, rauðar og hvítar, fóru að tíðkast í Ameríku uppúr 1870 og undir lok 19. aldar og á fyrstu árum þeirrar 20. voru rakarasúlur mjög fjölbreytilegar, bæði hvað varðar lögun og lit.
Súlur sem snerust komu til sögunnar seint á 19. öld og voru þá með fyrirferðamiklum og þungum handtrekkibúnaði.

Rafknúnu súlurnar fóru að tíðkast rétt fyrir 1900 og notkun þeirra breiddist hratt út eftir því sem rafmagn varð almennara. Fram til þessa höfðu súlurnar staðið á stéttinni fyrir utan rakarastofurnar. Litlu súlurnar sem hengdar voru á vegg, eins og sú sem hér er, urðu vinsælar í kringum 1915-1920 og þá var þríliturinn jafnframt orðinn ríkjandi. Upprunalegu munsturhólkarnir inni í glerhólkunum voru úr pappír og því viðkvæmir fyrir birtu og vildu upplitast hratt. Síðar var farið að nota plasthólka sem entust margfalt lengur og enn síðar hólka úr ryðfríu stáli og áli. Þá var einnig farið að framleiða ytri hólkana úr óbrjótanlegu glæru plasti, sökum tíðra skemmdarverka á glerhólkunum.
Sala rakarasúlna hefur hríðminnkað frá því um 1970-1980 í takt við niðursveiflu rakaraiðnarinnar.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica