Gripur mánaðarins
Tjald

Heimasaumað tjald

Gripur mánaðarins – júlí 2010

Júlí er stærsti sumarfrísmánuður Íslendinga. Nú er því upplagt að leggja land undir fót og fara með fjölskylduna í ferðalag. Útilegur hafa Íslendingar stundað um margra áratuga skeið. Því er við hæfi að gripur mánaðarins í júlí 2010 er heimasaumað tjald frá 1963.

Tjaldið er saumað úr hvítu dúnlérefti sem keypt var á brunaútsölu hjá Sambandinu í Austurstræti. Það er með lausum botni úr grænum segldúk og með appelsínugulum himni, einnig heimasaumuðum, líkt og pokarnir sem tjaldið, súlurnar og hælarnir eru geymd í. Tjaldið var hannað og saumað af eigendum þess sem smíðuðu einnig súlurnar í það. Hjónin sem áttu tjaldið notuðu það á hverju sumri í 20 ár og hver útilega var yfirleitt viku til tíu daga löng.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica