Trégríma frá Stóruborg
Febrúar 2012
Gríman er gróft tálguð og höggvin úr tré. Gegnum hana hafa verið boruð tvö göt þar sem augun ættu að vera. Götin eru greinilega boruð en ekki kvistgöt. Þá er markað eins og nef á fjölina með grunnum skorum og þar fyrir neðan er óreglulegt gat í gegnum hana eins og munnur. Umhverfis þessa andlitsmynd eru reknir sex járnnaglar.
Hugsanlega hefur gríman verið barnaleikfang eða notuð við einhvers konar skemmtanir.
Gríman gæti einnig hafa verið notuð til að gæða lífi magnaðar þjóðsögur af draugum og öðrum kynjaverum. Er hætt við að hrekklausum hafi brugðið illilega í brún að mæta þessu ófagra andliti í rökkrinu í bæjargöngunum á Stóruborg. Einnig mætti láta sér detta í hug að gríman hafi verið gerð í einhvers konar fjölkynngistilgangi.
Í þjóðsögum Jóns Árnasonar er lýst aðferð til að ná sér niðri á manni sem stolið hefur. Skyldi þá draga upp mynd af andliti eða auga á blað og setja stíl úr stáli í augað og slá á með hamri og segja: "Ég geri honum illt í auganu sem stal frá mér" eða þvílíkt. Naglarnir sex í grímunni frá Stóruborg gætu því hafa verið reknir til að gera þeim sem gríman er af illt í höfðinu.
Einnig hafa verið settar fram hugmyndir um að gríman sé hluti af vikivakaleikjum sem hér tíðkuðust á 16. og 17. öld. Vikivaki var samkoma þar sem dansaðir voru hópdansar. Inn á milli dansa birtist grímuklædd vera sem einskonar skrímsli. Samtímaheimild segir það hafa verið ,,ófreskjulegt í alla staði, alþakið svo ljótum lörfum sem framast var unnt og skeljaklastri sem skrölti og hringlaði í”.
Víst er að grímur voru notaðar í þessum leikjum og hljóðar ein lýsing svo: ,,Fyrst er tekin hornótt fjöl, so sem hálf alin löng og rúmt kvartél breið. Á fjölina eru negld tvö geldsauðarhorn, en fyrir neðan hornin eru smíðuð augu, og er þar smellt í gleri. Niður með vöngunum eru negld loðin gæruskinn grá. Nasir eru og tilbúnar og eru settar í þær tvær kertapípur, það er að segja svo sem mynd þeirra af tré sem er gjört á gat og þar í setter tveir kyndlar sem, á er kveikt, þá það kemur í stofuna. Hornótt gat er gjört fyrir neðan augun. Þar er rekinn í staur sem maðurinn heldur um, þá er hann leikur þetta skrímsli.”

