Óþekkt augnablik

Óþekktur enskur ljósmyndari

Heimsóknir skemmtiferðaskipa til Reykjavíkur eru ekki nýmæli. Slík skip fóru að eiga viðkomu á Íslandi strax á fyrsta áratug 20. aldar. Skipin voru fyrst og fremst frá þýskum og enskum skipafélögum.

Meðal áhafnarmeðlima voru ljósmyndarar sem mynduðu farþegana, viðkomustaðina og skoðunarferðir í landi. Myndirnar voru síðan seldar farþegunum um borð. Nýverið komu fram filmur frá enskum ljósmyndara sem tók myndir á meðan skemmtiferðaskip dvaldi í Reykjavíkurhöfn um 1935.

Áhugavert er að sjá hvað farþegunum er sýnt, Þvottalaugarnar og fiskreitir, glímusýning er haldin sérstaklega á Austurvelli og síðan eru viðkomustaðirnir hefðbundnir; Þingvellir og Gullfoss. Heimamenn, börn, vinnandi fólk og konur á peysufötum, sem verða á vegi ljósmyndarans fanga líka athygli og birtast okkur nú á mynd mörgum áratugum síðar.

Ivan Beales gaf Ljósmyndasafni Íslands stafræna útgáfu mynda þessa enska ljósmyndara árið 2009.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica