Óþekkt augnablik

Friðrik H. Ludvigsson (1901-61) og Ludvig Arne Hafliðason (1873-1924).

Lengi framan af voru flestir áhugaljósmyndarar kaupmenn, embættismenn og iðnaðarmenn. Þar réði mestu að ljósmyndavélar voru dýrar og flestir áhugaljósmyndarar önnuðust sjálfir framköllun mynda sinna, sem kallaði á búnað og aðstöðu.

Friðrik H. Ludvigsson kaupmaður í Reykjavík var áhugaljósmyndari. Þegar grannt var skoðað reyndist hluti filmusafns hans full gamall þar sem sumar myndanna eru frá konungskomunni 1907, en hann var þá bara 6 ára. Í ljós kom að elsti hluti safnsins var frá föður Friðriks, Ludvig Arne Hafliðasyni, en hann var líkt og sonurinn kaupmaður í vesturbæ Reykjavíkur. Algengt er að filmur heimilismanna myndi þannig eina óræða heild. 

Safn feðganna spannar meira en hálfa 20. öldina, allt frá fólki að raka hey á óþekktum bæ í aldarbyrjun til fólks sem sveiflast í hringekjunni í Tívolí í Vatnsmýrinni upp úr miðri öldinni. 

Anton Holt gaf Ljósmyndasafni  Íslands filmusafnið árið 2003.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica