Óþekkt augnablik

Guðni Þórðarson (1923)

Áður en stétt blaðaljósmyndara varð til þurftu blaðamenn að bjarga sér og sinna hvoru tveggja að skrifa textann og taka ljósmyndir til að fylgja lesmálinu. Guðni Þórðarson á Tímanum var einn þessara blaðamanna þó að vegur hans sem ljósmyndara yrði fljótlega ekki minni.

Guðni var farinn að taka ljósmyndir fyrir blöð 1946 en flestar filmurnar í safni hans eru frá árunum uppúr 1950. Blaðamennskan leiddi hann um landið þvert og endilangt og hann myndaði þorp og bæi, og fólk við störf til sjávar og sveita.

Tvívegis hafa verið haldnar sýningar með ljósmyndum Guðna á síðustu árum; með myndum úr Vesturheimi og úrvali mynda úr safni hans. Nú er brugðið upp myndum af fólki sem hann mætti á förnum vegi út um landið en líka í Reykjavík.

Guðni afhenti Ljósmyndasafni Íslands filmusafn sitt árin 2005 og 2006.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica