Óþekkt augnablik

Runólfur Jónsson (1927-1991)

Myndefni áhugaljósmyndara varð fljótt sígilt: fjölskylda og vinir, ferðalög og hátíðisdagar. Hvunndagurinn hafði tilhneigingu til að lenda í öðru sæti, en þegar farið var í ferðir var myndavélin höfð með til að mynda viðkomustaðina og ferðafélagana. Þannig varð myndavélin eins konar skráningartæki eða minnisvél og myndirnar urðu stór hluti af því að skapa minningar um ferðalagið.

Runólfur Jónsson var Vopnfirðingur að uppruna, en bjó lengst af í Mosfellssveit bæði sem vistmaður og starfsmaður á Reykjalundi. Filmusafn hans er með yngri áhugamannasöfnum sem safninu hafa borist. Fólk er áberandi viðfangsefni í safni hans, en þar eru myndir úr ferðalögum innan lands og syrpur kirkjumynda víða að af landinu og af húsum á ólíkum byggingarstigum og mannlífi á mótunarárum Mosfellsbæjar.

Sigrún Júlíusdóttur gaf Ljósmyndasafni Íslands filmusafnið árið 1991.   


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica