Óþekkt augnablik
Sigurður K. Eyvindsson (1900-1987)
Daglegt líf almennings fékk nýtt vægi í ljósmyndum með tilkomu áhugamanna. Elstu söfn áhugamanna bera þess merki að hið hversdagslega er sett í öndvegi: Fólk að matast í eldhúsinu eða við tjald úti á engjum og par liggjandi í rúminu.
Allt er þetta myndefni sem Sigurður K. Eyvindsson (1900-1987) valdi í myndatökum sínum. Hér er fólk í hvunndagsklæðum þó að Sigurður hafi líka brugðið sér með myndavélina á íþróttamót og samkomur í sveitinni. Sögusviðið er líklega að mestu Mosfellssveit en Sigurður ólst upp í Grafarholti og gerðist síðar bóndi í Austurhlíð í Gnúpverjahreppi.
Uppistaðan í filmusafninu eru einstakar ljósmyndir úr daglegu lífi hans og heimilisfólksins í Grafarholti, ekki ósvipað því sem er að finna á flestum heimilum í dag.
Magnús Ásbjörnsson gaf Þjóðminjasafninu filmusafn Sigurðar K. Eyvindssonar í tveimur áföngum árin 1997 og 1999.

