Óþekkt augnablik

Sigurður Tómasson (1895-1980)

Tvennt gefur ljósmyndum Sigurðar Tómassonar sérstöðu meðal mynda íslenskra ljósmyndara; þær eru litmyndir og stereóskópmyndir.

Sigurður starfaði sem úrsmiður í Reykjavík og var áhugaljósmyndari frá því um 1920. Elsta litglerplatan sem er tímasett hjá honum er frá árinu 1924. Ekki eru þekktar eldri litljósmyndir eftir Íslending.

Helsta myndform Sigurðar var stereóskópmyndin, tvær myndir teknar samtímis með nokkurra millimetra millibili sem verða þrívíðar þegar þær eru skoðaðar með sérstökum kíki. Myndefnið var fyrst og fremst íslensk náttúra. Tvo merkisviðburði í lífi þjóðarinnar, Alþingishátíðina og Lýðveldisstofnunina, myndaði hann í lit og stereóskóp. Hann var hugvitsmaður og bjó til textavél fyrir kvikmyndir og fann upp höggvörn í úr, þó að honum auðnaðist ekki að kaupa sér einkaleyfi til framleiðslu á úrum með henni.

Jóhann Ingjaldsson gaf Þjóðminjasafninu filmusafn Sigurðar árið 1994.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica