Sýning í samstarfi við Skaksamband Íslands á munum og myndum tengdum skákeinvíginu 1972.
Í ár eru liðin 40 ár frá skákeinvígi þeirra Fischers og Spassky í Laugardalshöllinni. Skákborðið úr einvíginu sem varðveitt er í Þjóðminjasafninu verður í öndvegi.
Kvikmynd Óskars Gíslasonar um Björgunarafrekið við Látrabjarg frá árinu 1949 er vel þekkt. Sýndar verða ljósmyndir sem teknar voru við gerð myndarinnar.
Ljósmyndir Sigurjóns Péturssonar og Þóru Hrannar Njálsdóttur sem sækja innblástur sinn í bók Gunnars Gunnarssonar Aðventu um ævintýri Fjalla-Bensa.