Á sýningunni eru svokallaðir módelkjólar sem saumaðir voru eftir pöntun og ýmsir fylgihlutir eins og skór, hattar, hanskar og undirföt. Kjólarnir eru listaverk, sumir látlausir og einfaldir aðrir tilkomumiklir og glæsilegir, kjólar sem pössuðu við konuna og tilefnið. Sýningarhöfundur er Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður, en með einstakri innsýn sinni í tískustrauma 20. aldar tekst henni að glæða kjólana á sýningunni nýju lífi.
Magnea Þorkelsdóttir biskupsfrú var mikil hannyrðakona og urðu mörg listaverk til í höndum hennar. Hún saumaði fjölda þjóðbúninga bæði á sig og afkomendur sína. Á sýningunni eru valdir búningar úr safni fjölskyldunnar.
Hjálmar R. Bárðarson fyrrverandi siglingamálastjóri var afkastamikill áhugaljósmyndari og gaf út fjölda bóka með myndum af landi og þjóð. Hér getur að líta svarthvítar myndir úr safni hans, bæði landslagsmyndir og listrænar myndir.
Lesa meira
Sýningunni er ætlað að varpa ljósi á sögu tóbaksnotkunar og baráttuna gegn henni allt frá upphafi á 17. öld fram til um 1990. Til þess eru notaðir gripir og ljósmyndir frá Þjóðminjasafni, gripir og gögn frá Krabbameinsfélaginu og tónlist sem notuð var í baráttunni gegn reykingum.