Sérsýningarnar
Andlit

Endurfundir

Myndasalur 31. janúar 2009 -31. desember 2010

Fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna.

Á árunum 2001 til 2005 styrkti Kristnihátíðarsjóður fornleifauppgröft á Gásum, Hólum, Keldudal, Kirkjubæjarklaustri, Reykholti, Skálholti, Skriðuklaustri og Þingvöllum.
Á sýningunni var sýnt úrval þeirra fjölmörgu gripa sem fundust í uppgröftunum.

Samnefnd sýningarbók var gefin út í tengslum við sýninguna. Í henni eru greinar eftir fornleifafræðingana sem stjórnuðu uppgröftunum. Þjóðminjavörður skrifaði formála. Ritstjórar: Guðmundur Ólafsson og Steinunn Kristjánsdóttir.


Kristnihátíðarsjoður var stofnaður til að minnast þess að 1000 ár voru liðin frá því að kristinn siður var lögtekinn á Íslandi. Hlutverk sjóðsins er tvíþætt: Annars vegar er honum ætlað að efla fræðslu og rannsóknir á menningar- og trúararfi þjóðarinnar og stuðla að umræðum um lífsgildi hennar, siðferði og framtíðarsýn. Hins vegar er hlutverk sjóðsins að kosta fornleifarannsóknir á helstu sögustöðum þjóðarinnar.

Frekari upplýsingar um sýninguna má fá á sérvef hennar.

Fornleifauppgröftur

Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica