Flutningur

Lýsið flutningi á hnausum (kekkjum) við eldri aðstæður. Hvernig var búið upp á hest er flutt var á barkrókum (torfkrókum)? Hve margir hnausar (kekkir) voru fluttir á hvorum krók?
Var einnig flutt “ofan í milli”? Voru hnausar festir (stungnir) ofan á klyfberaklakka í flutningi? Voru hnausar silaðir upp á hest með reipum? Lýsið því.
Voru hnausar fluttir til húsa á dráttarsleðum, er akfæri var á vetrum? Lýsið því.
Lýsið öðrum aðferðum við heimflutning á hnausum (kekkjum) ef þekktar eru. Hvenær var byrjað að nota hestvagna við þessa flutninga? Hvað var verkið kallað (að reiða heim hnausa t.d.)?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica