Grjóthleðsla
Voru hús hlaðin við kletta eða björg til að spara vinnu og efni? Lýsið því.
Lýsið vegghleðslu úr grjóti, m.a. með tilliti til mismunandi bergtegunda, er hlaðið var úr.
Segið frá undirstöðusteinum og kampsteinum. Hvað nefndust smásteinar og hellubrot, sem notuð voru til að skorða steina í hleðslu (klípi t.d.)? Hvað nefndist stæði steins í hleðslu (sæti t.d.)? Voru lög í veggjum hlaðin úr eintómum hellubrotum? Nefndist það eitthvað (skáhellulag t.d.)?
Var torf notað milli laga í grjóthleðslu? Hvernig var grjótið lagt í hleðsluna? Var t.d. venjuleg heytorfa, sem notuð var við vegghleðslu, rist að endilöngu, er hlaða átti, og báðir helmingarnir notaðir í hleðsluna? Var strengur (strengir) hafður milli laga í grjóthleðslu? Lýsið því.
Lýsið hleðslu á ytra borði útveggja og gaflhlaða. Úr hvaða byggingarefni var hlaðið þar? Skiptust þar t.d. á lög úr grjóti og hnausum (sniddu), eða var hlaðið úr hnausum eingöngu?
Lýsið fláa í innveggjum. Var veggurinn hlaðinn með fláa, er myndaði boglínu upp og niður, líkt og torfveggir? Var um það nokkur viss regla? Var vegghleðsla bein eða bogadregin milli horna í húsi (þ.e. grunn lína)? Lýsið fláa á ytra borði útveggja.
Segið frá moldarfyllingu í grjótveggi. Hvernig var mold þjappað í grjótveggi? Var veggjagrjót jafnað með öxi eða sleggju, er hlaðið var? Segið frá þykkt grjótveggja. Hvað vita menn dæmi þess, að grjótveggir hafi verið hlaðnir hæst, í álna- eða metratali? Segið frá endingu grjótveggja. Voru allir húsveggir á sama býli hlaðnir úr grjóti, ef þess var kostur?

