Hleðsla

Hvað nefndust veggir hlaðnir úr hnausum (kekkjum, streng, torfi, sniddu) (kekkjaveggir, klömbruveggir, moldarveggir, torfveggir o.s.frv.)? Lýsið undirstöðu veggja og kampa.
Nefndust hnausar í neðsta lagi eitthvað sérstakt?
Voru mismunandi gerðir af hnausum (kekkjum) notaðar við hleðslu á sama vegg: a) í innri hleðslu, b) í ytri hleðslu (útihúss)?
Lýsið því nákvæmlega, hvernig hver einstök gerð af hnausum var lögð í lag í vegg. Skiptust á lög í veggnum með mismunandi hnausgerðum og þá eftir vissri reglu? Voru dæmi þess, að hnausar (kekkir) væru hlutaðir í sundur, er hlaðið var til drýginda eða af öðrum orsökum og þá á hvern hátt (ferhyrndur hnaus (kökkur) t.d. hlutaður í tvo þríhyrnda hnausa)? Lýsið því.
Hvert sneri grasflötur á hnausum í hleðslu? Lýsið því. Var það e.t.v. breytilegt?
Lýsið strenghleðslu. Voru veggir hlaðnir af streng eingöngu? Voru ytra og innra borð veggja á einhvern hátt bundin saman með streng eða torfi?
Með hverju var skorið ofan af hnausum í hleðslu til að jafn flötinn? Nefndust torfflögurnar eitthvað? Hvernig var skorið utan af veggjum (hleðslan jöfnuð)? Hvað nefndist það (að skera utan af t.d.)? Var það gert við hvert einstakt lag eða fleiri lög saman? Með hverju var skorið (ljá t.d.)? Var fjöl lögð á veggbrúnina til að fá jafnan skurð millli horna?
Lýsið moldfyllingu í vegg. Hvað nefndist færsla moldarinnar í vegginn (að molda, mylda t.d.)? Hvernig var mold þjappað í vegginn og hvað nefndist verkið (að stutla, troða t.d.)? Var reynt með nokkrum hætti, hvort nógu vel væri til verks gengið, t.d. hellt vatni á moldina?
Lýsið kampahleðslu. Lýsið hleðslu horna. Voru horn rétthyrnd, boglaga eða skásneidd? Voru stallar í hesthús hlaðnir sem hluti af veggjum eða gafli? Lýsið því. Voru vindaugu á veggjum eða göflum (undirblástur á eldhúsum t.d.)? Lýsið því. Voru skot eða skápar byggð út í veggi eða kampa, t.d. í sambandi við slagbranda í hesthúsdyrum?
Var nokkur viss regla um fláa á veggjum og gafli? Lýsið því. Var nokkurt orð um fláalausa hleðslu (lo. skökuhlaðinn t.d.)? Hve háir voru torfveggir að jafnaði?
Hvernig voru innveggir byggðir til að taka við vatnsrennsli af þökum? Hve háir voru torfveggir að jafnaði? Hvað vita menn um endingu torfveggja?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica