Hnausgerðir, strengur, torf
Hvaða hnausgerðir voru stungnar og notaðar til að hlaða með hús? Lýsið þeim eins nákvæmlega og föng eru á (lögun, flái, stærð), og segið frá heitum þeirra. Gott væri að fá teikningar eða riss af hnausum, jafnvel þótt ófullkomið sé.
a) Hnakkahnaus, -hnakkakökkur, - klömbrur, - klömbruhnaus.
b) Hnaus, - kökkur, - pálkökkur.
c) Kvíahnaus, - stúfsnidda.
d) Oddasnidda, - snidda.
Var hnakkahnaus (klömbruhnaus) stýfður (þversneiddur) fyrir mjórri endann við stunguna eða við hleðslu?
Segið sérstaklega frá því, ef merkingarmunur var á orðunum hnaus og kökkur. Segið frá streng eða strengjum (lengd, þykkt, breidd), er notaðir voru við hleðslu á veggjum.
Var sérstök gerð af streng nefnd hryggir (hryggur)? Lýsið því.
Segið frá torfi, sem notað var í hleðslu á veggjum. Var það skorið til þess sérstaklega? Var gamalt heytorf notað við veggjahleðslu?

