Húsgrunnur

Hvernig var háttað mælingu á hússtæði? Með hverju var mælt (fet, skref, kvarði, vaður t.d.)? Við hvað miðaðist mæling (tölu búfjár í væntanlegu húsi, lengd í stafgólfum t.d.)? Var nokkur ákveðin regla um lengd stafgólfs?
Hvernig var það búið undir veggjahleðslu: a) á óhreyfðri jörð, b) í gömlu hússtæði? Var orðið moldartak (mikið eða lítið) notað um mold í hússtæði? Hvað var gert við þá mold, sem afgangs varð? Var grafið niður fyrir yfirborð jarðvegs eða grunnur aðeins jafnaður fyrir veggjaundirstöður? Var grafin rás meðfram veggjum að innan til að taka við vatni, er rann af eða úr veggjum (veggruna)? Hvað nefndist hún (for, ræsi, ræsir t.d.)? Voru forarbarmar hlaðnir, áður en byrjað var að hlaða veggi? Myndaði ytri brún forarhleðslu þá e.t.v. undirstöðu veggja? Hve breiðir voru veggir og kampar að jafnaði: a) undirstaða, b) efsti hluti?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica