Timburhleðsla

Kunna menn að segja frá því, að húsveggir á rekajörðum við sjó hafi verið byggðir úr heilum timburstokkum (trjábolum) að meira eða minna leyti?
Þekki menn það af eigin reynd eða annarra sögn eru þeir beðnir að lýsa því og minnast m.a. eftirfarandi atriða: Nefndust slíkir veggir einhverju ákveðnu nafni (skífaðir veggir t.d.)? Á hvern hátt voru trjábolir lagaðir til fyrir hleðslu? Voru þeir yfirleitt lagðir lárétt í vegginn? Hvernig voru samskeyti á hornum og aðrar festingar? Var fyllt með mold að trjánum? Voru grjót- eða torfhleðslur að dyrum og á ytra borði veggja?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica