Verkið

Nefndist fyrsti hnaus, sem stunginn var í óhreyfðri jörð, eitthvað? Hvað nefndist flagið, sem myndaðist smám saman við stunguna (pæla t.d.)? Var nokkurn tíma stungið nema eitt hnausalag í sömu pælu?
Var þá gerður greinarmunur á efra og neðar lagi (grashnaus, flaghnaus t.d.)? Lýsið verklagi stungumanns. Stakk hann beint niður eða hafði fláa á hausnum (kökknum)? Á hvern hátt fór það eftir mismunandi hnausgerðum? Hernig vann hann að því að stinga, ef ekkert stig var á pálnum? Hafði hann aðstoðarmann við að taka hnausana upp úr pælunni og hlaða þeim upp? Hvernig var hnausum hlaðið upp við pælu, og hvað nefndist hleðslan (hraukur t.d.)? Voru sérstök hlífðarföt við þetta verk (skinnhald)? Voru áhöld við höndina til að hvetja með páleggina (skóflueggina), er hún sljógvaðist (brýnsla, denging)? Var nokkur ákveðin greiðsla til manns, er fenginn var til að stinga hnausa (t.d. greiðsla fyrir hverja 100 hnausa, er hann stakk)? Var strengur stunginn með sama áhaldi (páli, skólfu) og hnausar? Var skorið neðan af þeim nýstungnum (jafnaðir)?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica