Áhöld

Voru sérstök áhöld gerð til þess að nota er rakað var af hrossi? Lýsið hrosshárssnældum af halasnældugerð (teinsnældum), m.a. með tilliti til stærðar (spunasnælda, tvinningarsnælda). Var algengt að þær snældur væru prýddar útskurði?
Var í notkun sérstök gerð af spunasnældu hrosshárs er nefndist vingla, rella eða vitlausa snælda? Lýsið henni, gerð og efni.
Voru til fleiri snældugerðir en halasnælda og vingla?
Voru til sérstakir hrosshársrokkar? Lýsið þeim.
Voru sérstök áhöld úr steini eða beini höfð til þess að leika (renna) á hrosshári er það var tvinnað? Hvað nefndust þau? Lýsið þeim. Voru til sérstök vefjaráhöld að nota er gjarðir voru ofnar?
Segið frá hrosshársal til að festa með hrosshársvindil í spuna t.d.
Voru til sérstakir hrosshárskambar? Voru aflóga ullarkambar notaðir sem hrosshárskambar?
Voru sérstakir hrosshárskláfar til að geyma í hnykla?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica