Að bregða gjörð
,,Ei til verka annað kann
en að bregða gjarðir."
Lýsið því, sé það ekki þegar fram komið, hvernig unnið var í gjarðir, miðað t.d. við snarleika efnis og gildleika og það hvort bregða átti reiðgjörð eða klyfberagjörð.
Lýsið verkinu við að rekja í gjörð og að bregða gjörð. Hvar og hvernig var rakið í gjörðina? Lýsið mismun þráðafjölda miðað við það hvort rakið var í reiðgjörð eða klyfberagjörð. Hve margir þræðir voru t.d. að jafnaði í reiðgjörð (39, 41 o.s.frv.)?
Var ákveðin mæling á lengd efnis miðuð við það hve mikið það gekk saman (styttist) í verki? Hvernig var mælt?
Lýsið litasamsetningu og litaröðun eftir því sem hægt er og þá miðað við það hvort átti að þverbregða, oddabregða eða vefa í vefstól. Var talað um tennta oddagjörð? Var talað um valbrugðna gjörð? Gerið grein fyrir verki, svo sem hægt er, um: a) þverbrugðna gjörð, b) oddabrugðna gjörð, c) ofna gjörð. Minnist m.a. eftirfarandi atriða: Hvar var verkið unnið? Hvar var gjarðaefnið upp fest og hvernig? Hvernig voru þræðir undnir í hankir? Hvernig gengu þræðir milli jaðra eða inn í skil?
Lýsið uppsetningu gjarðavefnaðar í vefstól, höföldum, skeið og áslætti. Var sérstakt áhald til að slá með fyrir í vef og e.t.v. til að vinda upp á fyrirvef?
Var meiri áhersla lögð á það að vanda til reiðgjarða en klyfberagjarða? Hvernig var gengið frá enda klyfberagjarðar er byrjað var að bregða hana? Hvað um ákvörðun lengdar á klyfberagjörð?

