Að hátta sig

Lögðu menn föt sín, sokka og skó frá sér eftir ákveðinni reglu er háttað var? Hvar og hvernig? Voru skór t.d. alltaf lagðir þannig á gólfið að tær vísuðu fram? Kunna menn frá því að segja að það hafi átt að vera vörn gegn martröð eða möru? Var þess yfirleitt gætt að sofa ekki með sokka undir höfðalagi? Hvers vegna? Var það kallað að klæða sig úr gæfunni ef maður klæddi sig í einu lagi úr sokk og skó af sama fæti? Var hægt að klæða sig í gæfuna aftur? Er þetta þekkt sem gömul þjóðtrú? Var venjan áður að berhátta í rúm? Hélst sú venja lengur hjá körlum en konum? Hvað nefndist það ef maður lagðist til svefns í öllum fötum (að sofa í belgnum t.d.)?
Vita menn hvenær það lagðist niður að draga plögg af mönnum er háttað var t.d. gestum?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica